Af skólagöngu og nýbyrjuðu sumri

Prófum lauk fyrir rúmri viku og einkunnir trítluðu inn í gær. Ég get ekki annað en verið sátt með 7,5 og 8 þó að mér finnist það ekki vera neitt sérlega fallegar tölur; málið er nú bara það að ég var fullkomin fáfræðingur í fögunum tveim sem ég nam á um 3 vikum. Það hlýtur að kallast ákveðið afrek, að minnsta kosti ágætis lexía um að geyma ekki alltaf það versta, ekki fresta og reyna að læra á meðan önnin stendur yfir.

Einhvern veginn grunar mig þó að “jafnogþétt” lærdómur víkji fyrir félagslífsskipulagningu, söngtímum, mömmó og almennri leti. When will they ever learn, when will they eeever learn.

Nýbyrjaða sumrið er íslenskt. Það er golað, skýjað, nískt á sól en ágætt engu að síður.

This entry was posted on Wednesday, June 24th, 2009 at 11:51 am and is filed under Uncategorized. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. Both comments and pings are currently closed.

4 Responses to “Af skólagöngu og nýbyrjuðu sumri”

  1. June 24th, 2009 at 2:18 pm

    Hafdís says:

    Til hamingju með þetaa! :)
    Mér finnst 7,5 og 8 nú bara fínar einkunnir! Allt yfir 7,5 er bara megafínt í mínum skóla allavega…

  2. June 24th, 2009 at 3:14 pm

    Telma says:

    Segir fröken ofureinkunn;) En jú auðvitað er ég ánægð – mjög ánægð

  3. August 14th, 2009 at 10:56 am

    Tinna says:

    And now for something completely different: Haustblogg!

  4. January 19th, 2010 at 2:24 pm

    Anonymous says:

    mjog ahugavert, takk