Tsss
Einmitt þegar ég var búin taka sjálfa mig á sálfræðinni og byggja upp nægilegan kjark til þess að vera komin á þá skoðun að ég gæti, myndi og skildi aldeilis syngja 3 einsöngslög á tónleikum þar sem frammistaðan yrði metin um leið - þá tóku aðrir ferlar en sálfræðilegir yfirhöndina og fóru í stríð.
*Kraftur hugarins HAHAHA sjáðu bara hvað VIÐ getum þú þarna sjálfstraust og jakvæðni*
Þetta voru örverurnar. Þær ráða meiru en taugaboðin í heilanum sem mynda með flóknum leiðum persónuleikann minn og reyna að tengja hugmyndir um opinberan söng framhjá magaónotum og yfir í sælu og stolt.
Örverurnar þær eru nefnilega skæruliðar og smjúga með ýmsum leiðum inn fyrir andlitsop. Taka sér til dæmis bólfestu í slímhúðum nefs og hálsar og mynda samfélög. Þeir eiga einn erkióvin, það er ónæmiskerfið. Hermenn ónæmiskerfisins eru mjög duglegir, sterkir og vandvirkir... en þeir eiga það til að mæta illa í vinnu ef yfirmaður þeirra er stressaður eða illa sofinn, hvað þá ef báðir liðir eiga við.
Þegar hinar illu örverur herja á ónæmiskerfið án þess að ónæmiskerfið sé fullmannað þá tekur stríðið langan tíma.
Þegar nefhol eru full af hori og ógeði þá rúmast þar illa loft þrýst upp um raddbönd í þeim tilgangi að mynda tóna. Þegar hálsinn er aumur verður raddbeitingin minna fögur en ella. Þessar líffræðilegu staðreyndir ráða yfir sálfræðilegum krafti.
Ég var alveg tilbúin til að syngja, ég ætlaði að negla þetta íslenska lag, túlka the bananas út úr sænska laginu og græta salinn með hjartnæmri ítalskri aríu (já vantar ekkert sjálfsálitið;)) en verð að lúta í lægra valdi fyrir krafti míkrólífveranna, sem hafa ekki einu sinni huga. Bleh.

6 Comments:
Snilldarfærsla! Fagna bloggendurkomu þinni ;)
knús Binns
.. og láttu þér batna! :*
Birnasín:* og JÁ ég koma að dansa!!!
Til hamingju með afmælið Telma litla jafnaldra :-) Ég vona að þú eigir ljúfan sunnudag, engan venjulegan sunnudag heldur afmælissunnudag! Hvenær viltu að við mætum í Singstarpartýið? ;-)
Skemmtileg færsla, þú ert svaka flottur penni :)
Ji minn þakka hrósið, hef alltaf litið á mig meira sem bleikan blýant með barnalegu strokleðri efst :p
Og takk Eygló mín, við veðrum sko aldeilis að setja singstarpartý á dagskránna fljótlega, helst áður en Brynhildur og Gunnsteinn heimta að vera með;)
Sendu inn athugasemd
<< Heim