Nei fyrr má nú aldeilis fyrr vera
að hér hafi ekkert bloggast síðan í fyrra!
Stardate: tólfti janúar og árið er tvöþúsund og tíu.
Staðsetning: Hlíð kennd við barma númer átján í fagurri borg á lítilli eyju í norðuratlantshafi þar sem eyjaskeggjar þakka golfstrauminum lífsgæði.
Ástæða uppfærslu: Fésbókarleiði og almenn vélritunarþörf.
Dagsverk: Ég las ofurlítið fyrir komandi sjúkrapróf í lífefnafræði, komast að því að ég er mun hrifnari af lípíðum heldur en próteinum og að ég á langt í land námsefnislega. Komast jafnframt að því að lífefnafræði er stórkostlega spennandi og skemmtileg, svolítið eins og tungumál sem hefur leyndar upplýsingar að geyma. Þrautabraut að leyndardómum lífsins!!! Að allri dramatík undanskilinni fjallar lífefnafræðin nú einu sinni um ferlana sem halda í okkur lífinu... og þeir eru magnaðir og skemmtilegir, þó ansi seinlærðir og læsið fæst hægar en ég hefði helst viljað.
Síðdegisverk: Yndislega Erna frænka mín lék við okkur mæðgur í dag og gaf Brynhildi pappírsgogg sem hún hafði ekki meiri áhuga á en pappírshattnum frá Tinnu, þó svo að hún hafi eftir á talað mikið um Tinnu og Svíþjóð og fór strax að tala um Ernu þegar hún hafði kvatt. Pappírsbrot eiga greinilega lúmska leið inn í hug barna? Eða Svíþjóðarbúar. Eða bara awesome manneskjur jafnvel.
Kvöldverk: Barnið baðað. Barnið svæft. Horft á Lie to me og How I met your mother.
*Fyrir áhugasama: Þetta var þriðji þátturinn sem við spúsi (haha) horfðum á af Lie To Me. Við erum enn að mynda okkur skoðun á þáttunum, enn sem komið er þykja þeir ágætis afþreyting, pilotinn var þó bestur þessara þriggja og vonir eru uppi um að handritshöfundar hætti að tyggja kenningar og uppgötvanir ofan í áhorfendur - veit ekki hvort að ég sé svona sjúklega klár og sniðug... en ég næ í alvöru alveg pælingunni eftir eina útskýringu og þarf ekki áminningu oft í hverjum þætti að svipbrigði séu alþjóðlega sameiginleg og að úlfasvipur þýðir ógeð.
HIMYM ætlaði að valda mér miklum vonbrigðum þegar ég, í nanósekúndu?, gleypti það að Summer væri mamman. Hell nó! Svo fundu vinirnir leiðina að hjarta mínu þegar Barney brast í söng eins og honum einum er lagið. Aww.*
Áætluð næturverk: Að vekja ekki hinn sofandi dúett þegar ég skríð upp í rúm og les í American Gods við örlítið lampaskin þar til augnlokin fara að mammast og reka mig inn í draumahöllina.

6 Comments:
Er alveg að kunna að meta það að það sé komin ný bloggfærsla.... maður er næstum búinn að gleyma hvað blogg er :)
Meira svona takk hehehe
Harpa Hrund
Harpa ég er næstum búin að gleyma hvernig þú lítur út! Nei ók, ekki satt... en ég sakna þín kona góð! Ég þarf greinilega að fara að hýsa matarklúbb þar sem þú kemst með
Vei blogg! Þetta fer vel í mannskapinn. Ekki síst þegar bloggið fjallar meira að segja pínulítið um mig :) Ég gef Brynhildi bara fleiri gjafir næst og kaupi hana þar með til að hrífast af pappírshöttum.
ó hvað ég er ánægð að sjá bloggfærslu!! Ég kljáist oft og reglulega við sama fjesbókarleiða og skammast yfir því að enginn bloggi lengur - þessi færsla var því eins og manna fyrir vannærða sál mína (dramatík og allt!)
Knús
EddaK
ó hvað ég er ánægð að sjá bloggfærslu!! Ég kljáist oft og reglulega við sama fjesbókarleiða og skammast yfir því að enginn bloggi lengur - þessi færsla var því eins og manna fyrir vannærða sál mína (dramatík og allt!)
Knús
EddaK
Takk fyrir ahugaverdar upplysingar
Sendu inn athugasemd
<< Heim