Telma talar

stundum mikið

laugardagur, 23. janúar 2010

Dagdreymandi

Suma daga skoða ég foodgawker.com (uppskriftarsíða með myndum) tímunum saman og borða alla girnilega rétti í huganum á mér. Er oft orðin svo södd eftir allt þetta net-át og þreytt eftir alla ímynduðu eldamennskuna að ég nenni ekki að elda alvöru mat.

Aðra daga skoða ég möguleg mastersnám á netinu. Þá les ég fyrst heiamsíður háskóla, les svo um borgina sem um ræðir og skoða af henni myndir, fletti því upp hvers konar stúdentaíbúðir væru í boði og fleira. Mæti í fyrirlestur og rölti um svæðið í huganum.

Þegar félagsþörfin lætur á sér kræla leita ég uppi vini sem nenna að spjalla á fésbókinni eða msn, upplifi djömm og kaffihúsaævintýri í gegnum sænska bloggara og þykist vera memm í samfélaginu með því að lesa fréttauppfærslur.

Það er nú alveg meira hvað maður getur átt viðburðarríkt líf með tölvuhangsi! Eða þannig.

3 Comments:

At 20:24 , Blogger Tinna said...

Líf mitt í hnotskurn. Er að byrja að lesa bækur aftur til að reyna að snúa mér aftur yfir í "fínni" ímyndunarheim.

 
At 16:24 , Anonymous Hrönn said...

Ég kannast við svona netvafr. Sérstaklega þegar maður leitar að mögulegu framhaldsnámi og skoðar þá eeendalausu möguleika sem eru í boði. Ég er verð bara uppgefin að hugsa um það. Úff..

 
At 21:06 , Blogger Birna Kristín said...

Ég er mjög gjörn á þetta sama.. Ótrúlega margt sem maður "gerir" bara á netinu en ekki í alvörunni.

Koma að dansa bráðum?

 

Sendu inn athugasemd

<< Heim