Hve gott það væri að ofn hafa
Ég hef verið ofn-laus í um 3 mánuði. Í fyrstu fann ég ekkert fyrir því, ég hafði þá nýlega eignast belgískt vöfflujárn og uppfyllti bakkelsis-þrár með fljótgerðum vöfflum, prýddum ávöxtum rjóma og súkkulaði. Ég steikti fiskinn eða sauð, pantaði pizzurnar og hugsaði ekkert um lasagna.
Svo fór það að gerast... búðarbrauðin brögðuðust æ meira eins og plast, grænmetislasagne-draumar vöktu mig með tómt hol í maganum, skúffukökur fóru að sveima fyrir augum mér og heimagerðar pizzur urðu það eina sem ég gat hugsað um.
Ég sakna ofnsins míns. Ég les bakarablogg daglega og fletti í gegnum brauðkaflana í uppskriftarbókunum mínum. Maður á það til að vilja það sem maður ekki fær?

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim