Telma talar

stundum mikið

miðvikudagur, 24. júní 2009

Af skólagöngu og nýbyrjuðu sumri

Prófum lauk fyrir rúmri viku og einkunnir trítluðu inn í gær. Ég get ekki annað en verið sátt með 7,5 og 8 þó að mér finnist það ekki vera neitt sérlega fallegar tölur; málið er nú bara það að ég var fullkomin fáfræðingur í fögunum tveim sem ég nam á um 3 vikum. Það hlýtur að kallast ákveðið afrek, að minnsta kosti ágætis lexía um að geyma ekki alltaf það versta, ekki fresta og reyna að læra á meðan önnin stendur yfir.

Einhvern veginn grunar mig þó að "jafnogþétt" lærdómur víkji fyrir félagslífsskipulagningu, söngtímum, mömmó og almennri leti. When will they ever learn, when will they eeever learn.

Nýbyrjaða sumrið er íslenskt. Það er golað, skýjað, nískt á sól en ágætt engu að síður.





4 Comments:

At 14:18 , Blogger Hafdís said...

Til hamingju með þetaa! :)
Mér finnst 7,5 og 8 nú bara fínar einkunnir! Allt yfir 7,5 er bara megafínt í mínum skóla allavega...

 
At 15:14 , Blogger Telma said...

Segir fröken ofureinkunn;) En jú auðvitað er ég ánægð - mjög ánægð

 
At 10:56 , Blogger Tinna said...

And now for something completely different: Haustblogg!

 
At 14:24 , Anonymous Nafnlaus said...

mjog ahugavert, takk

 

Sendu inn athugasemd

<< Heim