...og sólin sem skín
Þegar sólin skín og vindurinn heldur aftur af sér eins og gerst hefur af viti í 3 daga núna þá verð ég allt í einu ofboðslega sátt við Ísland og draumar um miðjarðarhafið gufa upp. Í þessu blessaða lúxusveðri get ég eytt öllum deginum úti og allt verður svo einfalt. Brynhildur fær að vera léttklædd og pissar í grasið, ég slepp við að dröslast með yfirhafnir hvert sem við förum og ekki spillir það fyrir að við fáum tækifæri til að sanna það að við séum ekki vampírur, þegar smááá roði sprettur fram í kinnar og á bringu.
Hvað er slæmt við veðrið?
*ekki séns að ég sitji og læri (sem er ekki svo gott vegna júníprófa)
*Brynhildur heldur að sólarvarnar-smurning sé aftaka; berst gargandi fyrir lífi sínu þegar kreminu er makað í andlitið á henni
Það er eiginlega ALLT gott við sólina. Vúhú! (sjáið bara hvað geðheilsan verður góð)

1 Comments:
Maður verður sjálfkrafa glaður þegar sólin skín og fattar kannski fyrst þá hvað það er bilað hvað veðrið hefur mikil áhrif á skapið í manni.
Sendu inn athugasemd
<< Heim