Mmm double-glace

Ég var Svíþjóð um daginn, það var mega. Það sem svíar kunna... er reyndar margt, en eitt sem þeir eru virkilega góðir í er bakkelsi. Mikil ósköp, ég át bakkelsi fyrir allan aurinn.
Prinsessuterta er eina rjómatertan sem þú þarft að kunna að gera, hún hefur öll brögðin, áferðina, útlitið og er fullkomin.
Semlur, rjómabollur svíanna, eiga nánast ekkert skylt með íslensku bolludagsbollunum nema nokkurn veginn útlitið. Bollan sjálf
er ekki "bara" gerbolla heldur er hún krydduð og bragðgóð, mjúk og ilmandi. Þeytti rjóminn er með greinilegt vanillubragð og ekki of þykkur... fyllingin má vera annað hvort marsipan eða vanillukrem en ekki sulta.Kanilsnúðar svíaríkis eru alvöru kanilsnúðar. Sorrí, en þessir stökku litlu kexmolar sem íslendingar baka ættu nánast ekki fá að ganga undir nafninu. Kanelbullar eiga að vera mjúkir og djúsí, með glás af stökkum skjannahvítum perlusykri ofan á og klístrugt, feitt og sætt kanilkrem í sprungunum. Svo eiga þeir að vera á stærð við góða samloku helst.

Mmm.

3 Comments:
naaaaammminamm... oooh... demitt! Ég sem ætlaði ekki að láta undan munnvatnskirtlunum í dag!
Mjög girnilegt, Svíar eiga margt gott.. Við bökum ennþá stundum kanelbullar, þær eru góðar!
Ég mun samt seint fyrirgefa hvað þeir kunna ekki að elda fisk! ;)
Þetta með fiskinn er svo grátlega satt. Ég hef borðað fisk svona fimm sinnum síðan ég flutti hingað (sushi ekki talið með reyndar) því fiskurinn í stórmörkuðunum er eiginlega bara ógeð. Þeir eru betri í rækjunum.
Oh, langar í kökur.
Sendu inn athugasemd
<< Heim