Ímynduð höll með stofumergð skúmaskot og lystigarð
Ég bý í 100 fermetra glæsihýsi þar sem sólargeislar flæða inn um himinháa glugga, kasta birtu á kristalsljósakrónur og gullmuni, þar sem svo hátt er til lofts að hljómburður minnir á tónleikahús og fólk getur auðveldlega villst ef athyglin reikar á brott.
Ekki í alvörunni, en svona í huganum. Húsið mitt er nefnilega helmingi stærra en fyrrverandi bústaður og það hefur svolítil víðáttu-hallar áhrif.
Ég hef til dæmis nokkrum sinnum sest niður og skipulagt ímyndaðan ratleik, þar sem ég fengi gesti til mín í æsispennandi leiðangur um vistarverurnar og grasblettinn fyrir aftan hús með tilheyrandi vísbendingum og sé þá fyrir mér Jane Austen-kjóla í bland við Maríu Antónettu hár og skart - hlátur og gleði og æsing... Lít svo í kringum mig og átta mig á að ratleikurinn tæki líklega bara 15 mínútur og þar með talinn ferð niður í þvottahús og tilbaka.
Held ég skipuleggi samt sem áður ratleik. Get svo bara skyldað boðsfólk um að mæta í síðkjólum og pantað sólskin, sett barokk á fóninn og haft púrtvínstaup meðfylgjandi vísbendingum inni í skápum ... (og svo fara allir í "ná grísnum" úti í lystigarðinum í lokin að sjálfsögðu).

1 Comments:
Já ratleikur vííí! Ég skal mæta í síðkjól og með sólhlíf og reyna að rata eins og ég get!
Sendu inn athugasemd
<< Heim