Hvað er í matinn?
Nú ætla ég að tala um næringargildi AHHH náði ykkur!
Mér leiðist að elda fyrir 2, sérstaklega þegar annar tveggja er tveggja og hálfs og líklegur til að smakka ekki einu sinni sinn skammt.
Þriðji aðilinn kemur svo heim þegar maturinn er orðinn kaldur og ógirnilegur og er vís til þess að sætta sig við ristað brauð þar sem upphitun er miður spennandi.
Kvöldmatur á B18 er því oftast snarl; mangó, brauðsneið, jógúrt... ekki spes.
Í kvöld langar mig að hafa girnilegt kjúklingakesedíjas með sýrðum rjóma og salsa, skemmtilega grænt og rautt salat með og helst einn samsnæðanda yfir tvítugu.

4 Comments:
Þá eru súpur og kássuréttir vinur þinn. Lækkar bara undir í næstum ekkert þegar þú færð þér, og hækkar svo aðeins áður en Kalli kemur.
Laumarðu á vænlegum uppskriftum? Ég er mest fyrir mat sem ekki krefst meira en 30 mínútna undirbúnings (suða ekki meðtalin)
www.foodgawker.com! Innblástur frá öllum heimshornum og girnilegar myndir með.
Næs! I like food, food is good
Sendu inn athugasemd
<< Heim