Telma talar

stundum mikið

þriðjudagur, 21. apríl 2009

Erfitt er gaman

Ég er að læra um erfitt efni, erfðafræði og frumulíffræði, les það ofurhægt og flest lekur út úr minninu um leið og ég byrja á nýrri málsgrein. Veit ekki hvort taugungar mínir séu óhæfir um að mynda nýjar tengingar þegar þessi viðfangsefni eru annars vegar eða hvað, ég þarf greinilega að leggja mig alla fram. Lisbeth Salander í bókum Stieg Larsson getur horft á texta og munað þá. Hún getur horft á flóknar stærðfræðiformúlur og stjarneðlisfræðidæmi og skilið þau og leyst. Ég væri til í smá svoleiðis töfra núna. Því ég vil svo óskaplega gjarnan að þessi fög festist inni í kollinum, þetta er svo asskoti forvitnilegt og fróðlegt!

Sól, hjól og bjór = núna. Gottgott