Telma talar

stundum mikið

miðvikudagur, 15. apríl 2009

Come to me, Cosette, the light is fading

Ég hef gaman af þáttaröðinni um hvernig Ted Mosby hitti móður barna sinna. Svo gaman að ég fór að skoða viðtöl við leikaragengið. Í einu viðtalinu talaði Neil Patrick Harris um hrfiningu sína á söngleiknum Les Miserables og að hann ætti þá hrifningu sameiginlega með Jason meðleikara sínum, þeir ættu það til að bresta stundum út í söng og að það væri mögnuð stund. Svo tóku þeir lagið; Confrontation þar sem Neil söng Javert og Jason Jean ValJean og var það ansi hrífandi og skondið í senn.

Í kjölfarið fletti ég upp tónleikauppfærslu af söngleiknum og hlustaði á hann nánast allan. Dramatík í hámarki og þrúgandi stemmning. Grét sárt yfir dauða Fantine og svanasöng hennar til dóttur sinnar Cosette... Ah, er eitthvað skemmtilegra en söngur?