Du gamla du fria du fjällhöga nord
Ég les blogg hjá nokkrum svíum því í Svíþjóð er ennþá töff að blogga. Einn svíinn er svínslega ríkur, 18 ára, duglegur, fallegur og borgar fyrir að láta þrífa litlu íbúðina sína. Það er hún Isabella mín. Annar svíinn er trúaður, rólegur, heimilsdundandi og elskar bakstur og "pyssel", heitir sá Clara. Svo er það sænska parið, ofurparið, sem þrátt fyrir að vera tæplega tvítugt eru nemar í Oxford og Warwick, vakna kl 05:00 til að taka 10 km sprett, læra allan daginn og sofna fyrir 21:00.
Þessir svíar eru skemmtilegir og sérstaklega ólíkir mér allir.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim